Ungt Vísindafólk

Hugmyndir að verkefnum

Hvað getur verkefni verið?

Verkefni í Ungu vísindafólki getur byrjað á spurningu, vandamáli, athugun, tilraun, frumgerð, gagnasöfnun eða hugmynd sem þú vilt rannsaka betur.

Ungt fólk skoðar og prófar vísindaverkefni
Góð hugmynd þarf ekki að vera flókin. Hún þarf fyrst og fremst að vera skýr, áhugaverð og hægt að rannsaka, prófa eða útskýra.
Byrjaðu hér

Gott verkefni byrjar oft á einfaldri spurningu.

Þú þarft ekki að finna upp eitthvað alveg nýtt. Þú getur byggt á fyrri þekkingu, verkefni úr skóla, eigin athugunum eða vandamáli sem þú hefur tekið eftir. Mikilvægast er að þú getir sýnt hvað þú vildir rannsaka og hvernig þú vannst að því.

Verkefnasvið

Verkefni geta komið úr mörgum áttum.

Samfélag og fólk

Rannsakaðu viðhorf, hegðun, skólamál, réttindi, samskipti, samfélagsmiðla, lýðræði eða daglegt líf ungs fólks.

Umhverfi og loftslag

Skoðaðu orkunotkun, sóun, endurvinnslu, mengun, náttúru, vistkerfi, loftslag eða lausnir sem geta bætt umhverfið.

Tækni og tölvunarfræði

Þróaðu forrit, vefsíðu, gagnagreiningu, gervigreindarlausn, tæknilega frumgerð eða stafræna lausn á raunverulegu vandamáli.

Heilbrigði og velferð

Kannaðu svefn, hreyfingu, næringu, líðan, aðgengi, stuðningstæki eða leiðir til að bæta heilsu og velferð.

Náttúruvísindi

Gerðu tilraun, mældu áhrif, rannsakaðu lífverur, efni, ljós, hita, vatn, jarðfræði eða önnur fyrirbæri í náttúrunni.

Hönnun og verkfræði

Hannaðu, smíðaðu, prófaðu og bættu lausn, tæki, líkan eða frumgerð sem leysir ákveðið vandamál.

Spurningar til að byrja með

Ef þú ert ekki viss, byrjaðu á “af hverju?” eða “hvernig?”.

Margar góðar rannsóknir byrja ekki með fullmótaðri lausn heldur með forvitni. Prófaðu að skrifa niður nokkrar spurningar áður en þú ákveður nákvæmlega hvert verkefnið verður.

Af hverju gerist þetta?

Góð byrjun fyrir verkefni sem reynir að skilja orsök, samhengi eða mynstur.

Hvernig má mæla þetta?

Góð byrjun fyrir verkefni sem safnar gögnum, gerir samanburð eða skoðar breytingar.

Er hægt að bæta þetta?

Góð byrjun fyrir hönnun, nýsköpun, forritun, verkfræði eða lausnamiðað verkefni.

Dæmi um verkefnahugmyndir

Hér eru dæmi um spurningar sem gætu orðið að verkefnum.

Samfélag

Hvernig upplifa nemendur notkun gervigreindar í námi? Hvaða áhrif hafa samfélagsmiðlar á svefn eða einbeitingu? Hvernig má gera skólaumhverfi aðgengilegra?

Umhverfi

Hversu miklum mat er hent í skólanum? Er hægt að minnka plastnotkun með einfaldri breytingu? Hvernig breytist hitastig milli ólíkra svæða í nærumhverfinu?

Tækni

Getur einfalt forrit hjálpað nemendum að skipuleggja nám? Má nota skynjara til að mæla loftgæði? Hvernig má nota gögn til að finna mynstur í daglegu lífi?

Heilbrigði

Hvaða venjur hafa áhrif á svefn? Hvernig breytist púls við mismunandi hreyfingu? Er hægt að hanna betra hjálpartæki fyrir ákveðna þörf?

Náttúruvísindi

Hvaða aðstæður hafa áhrif á vöxt plantna? Hvernig breytist sýrustig í vatni? Hvaða efni virka best við ákveðna tilraun?

Hönnun og verkfræði

Hvernig má hanna einfaldari lausn á hversdagslegu vandamáli? Hvaða efni eða form virka best? Hvernig má prófa og bæta frumgerð?

Afmörkun

Gerðu verkefnið nógu lítið til að hægt sé að klára það.

Algeng mistök eru að byrja með of stóra hugmynd. Reyndu að þrengja verkefnið þannig að þú getir safnað gögnum, prófað lausn eða útskýrt niðurstöður á skýran hátt.

Of stórt

„Hvernig má leysa loftslagsvandann?“

Betra

„Hversu mikilli orku mætti spara í skólanum með einfaldri breytingu á lýsingu?“

Af hverju?

Seinni spurningin er skýrari, mælanlegri og auðveldara er að útskýra aðferð og niðurstöður.

Næsta skref

Veldu eina spurningu og prófaðu að skrifa stutta lýsingu.

Lýsingin þarf ekki að vera löng. Skrifaðu hvað þú vilt rannsaka, hvers vegna það er áhugavert, hvernig þú gætir unnið verkefnið og hvað þú vonast til að komast að.

Stutt verkefnalýsing

„Ég vil rannsaka … vegna þess að … Ég ætla að gera það með því að … Ég vonast til að komast að því hvort …“

Góð hugmynd getur komið úr eigin reynslu. Ef þú hefur tekið eftir vandamáli í skólanum, heima, í samfélaginu eða í nærumhverfinu getur það verið góður grunnur að verkefni.